banner_7.jpg
 
Fréttir og Tikynningar :: H20 m. klór
Frábær sundnámskeið fyrir káta krakka Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ingigerður   
Miðvikudagur, 14. júní 2023 17:55

Sumarsundnámskeið Ægis hefjast 19. júní og eru fyrir börn frá 4 ára aldri.
Frábær námskeið fyrir börn til að læra undirstöðuatriðin í sundi.
Kennsla fer fram í innilauginni í Breiðholtslaug og er hver tími tími 30 mínútur.
Hvert námskeið stendur yfir í 9 eða 10 daga (2 vikur virka daga).

  1. námskeið 19. - 30. Júní (10 dagar) - verð: 10.500 kr.
  2. námskeið 3. - 14 Júlí (10 dagar) - verð: 10.500 kr.
  3. námskeið 17. - 28. Júlí (10 dagar) - verð: 10.500 kr.
  4. námskeið 31. júlí - 11. ágúst (9 dagar) - verð: 9.800 kr.

Tímar sem eru í boði 9:00 - 9:45 - 10:30 - 11:15 - 12:30 og 13:15.
Systkini sem eru skráð saman á námskeið fá 10% afslátt af námskeiðsgjaldi.
Skráning fer fram á www.sportabler.com/shop/aegir/sund eða með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


sundnámskeið 23 enska 

sundnámskeið 23 polska



 
Æfingatafla fyrir haust 2022 uppfærð Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Þriðjudagur, 30. ágúst 2022 22:27

Æfingataflan fyrir haustið 2022 hefur nú verið uppfærð og er aðgengileg hér vinstra megin á síðunni.

 
Ægir er Reykjavíkurmeistari 2022 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Sunnudagur, 01. maí 2022 10:35

Sundfélagið Ægir varð í gær Reykjavíkurmeistari 2022.


IMG 7208

 

Þá urðu Ægirringarnir Sunna Arnfinnsdóttir og Birgir Hrafn Kjartansson stigahæstu sundmenn mótsins í sínum aldursflokkum.

Mótið sem venjulega er haldið í janúar ár hvert var haldið seinna í ár vegna COVID faraldursins. COVID kom þó við sögu á mótinu en nokkrir sundmenn gátu ekki tekið þátt eftir að hafa greinst með sjúkdóminn. Þrátt fyrir að nokkrir sundmenn félagsins í aldursflokkum gætu ekki tekið þátt allt mótið vegna æfingarhelgar Framtíðarhóps Sundsambandsins þá náði félagið að verja titil sinn frá í fyrra, en Ægir varð einnig Reykjavíkurmeistari árið 2021.

Þetta er sérstaklega ánægjulegur árangur þar sem félagið fagnar 95 ára afmæli sínu í dag. Við minnum af því tilefni á afmæliskaffið á annarri hæð Laugardagslaugar í tilefni dagsins. Allir sundmenn, núverandi og fyrrverandi og velunnarar félagsins eru velkomnir.

Við óskum sundmönnum og þjálfurum til hamingju með þennan glæsilega árangur á stórafmælisárinu!

Stjórnin.

 
Niðurstöður aðalfundar 2022 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 30. mars 2022 19:56

Sundfélagið Ægir hélt Aðalfund félagsins þann 29. mars síðastliðinn.

Megin niðurstöður fundarins voru eftirfarandi:

  • Helgi Þór Þórsson var kjörinn formaður félagsins til næstu 2ggja ára.
  • Ásgeir Ásgeirsson, Hildur Björk Kristjánsdóttir og Júlía Þorvaldsdóttir halda áfram í stjórn til eins árs.
  • Arnfinnur Jónasson kemur nýr inn í stjórn til 2ggja ára.
Guðni Einarsson hverfur úr stjórn og þakkar félagið honum afar vel unnin störf síðustu 2 ár. 
  • Á fundinum var Kjartan Birgisson kjörinn áheyrnarfulltrúi foreldra fram að næsta Aðalfundi.
  • Fimm fulltrúar úr röðum foreldra voru tilnefndir í foreldraráð félagsins.
  • Kjör fulltrúa í SRR var vísað til nýrrar stjórnar.
  • Ákvörðun um félagsgjald var vísað til nýrrar stjórnar.
  • Skoðunarmaður reikninga var kjörinn Hólmsteinn Ingi Halldórsson og Pála Þórisdóttir til vara.
Félagið óskar nýjum formanni og öðrum kjörnum fulltrúum velfarnaðar í starfi fyrir félagið.

 

 
Dómaranámskeið, fimmtudaginn 30/9. Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Sunnudagur, 26. september 2021 22:11

Dómaranámskeið verður haldið fimmtudaginn 30/9. Ægir hvetur foreldra til að taka þátt í sundstarfi barna sinna með því að gerast sunddómarar. Námskeiðið verður haldið á milli kl. 18:00 og 20:00 í húsnæði ÍSÍ við Engjaveg. Það nægir að mæta á staðinn til að taka þátt. Verkleg þjálfun fer fram á ARENA mótinu sem haldið verður helgina 2. - 3. september.

Stjórnin.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 3 af 133
 

Á döfinni:

WorldClass