banner_14.jpg
 
Fréttir og Tikynningar :: H20 m. klór
Skráning á haustmisseri 2021 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Fimmtudagur, 05. ágúst 2021 09:51

Kæru sundmenn og forráðamenn. Nú er skráning í sundhópa hafin fyrir haustmisseri 2021.

Skráningar fram í rafrænu skráningarkerfi Sundfélagsins Ægis í Sportabler. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða skipta greiðslum í allt að 4 hluta. Hefjið skráningu með því að smella hér eða á krækjuna vinstra megin á síðunni.

Það er mikilvægt að skrá sundmenn sem fyrst til að hægt sé að staðfesta æfingtöflu hópanna en fyrstu drög að henni má finna hér eða á síðunni til vinstri. Vakin er athygli á því að æfingataflan getur breyst næstu vikur á meðan allir hópar eru að komast í gang.

Sundmönnum sem hafa snjallsíma og forráðamönnum er bent á að hlaða niður snjallforritinu Sportabler til að fylgjast með æfingatímum og tilkynningum frá þjálfurum.

Mikilvægt er að fylgjast með fréttum hér á heimasíðu félagsins og frá þjálfurum á facebook síðum hópanna (GullSilfurBrons).

Stjórnin.

 
Uppskeruhátið Ægis fyrir 2020 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Þriðjudagur, 08. júní 2021 18:57

Uppskeruhátíð Sundfélagsins Ægis fyrir árið 2020 verður haldin mánudaginn 14. júní á efri hæð Laugardalslaugar

Hátíðin hefst kl. 18:00 og henni líkur um kl. 19:30. Að þessu sinni er hátíðin engöngu fyrir sundmenn félagsins í Löxum, Höfrungum, Brons-, Silfur- og Gullhópum,  en einn aðstandandi má gjarnan fylgja sundmönnum í Löxum og Höfrungum.

 

Loksins höldum við uppskeruhátíð til að fagna árangri ársins 2020 :) Árið 2020 var afar sérstakt ár og tekur hátíðin mið af því, m.a. vegna þeirra sóttvarnarreglna sem eru í gildi. Að þessu sinni verður hátiðin eingöngu fyrir sundmenn og þjálfara og býður félagið upp á veitingar í stað sameiginlegs hlaðborðs sem hefð er fyrir. Einn aðstandandi má fylgja hverjum sundmanni í Löxum og Höfrungum. Á boðstólum verða pizzur, drykkir og eftirréttur.


Dagskráin verður með hefðbundnu sniði:

1. Farið yfir helstu atburði ársins 2020.
2. Aldursflokkaviðurkenningar veittar sundmönnum fyrir árið 2020.
3. Viðurkenningar fyrir ástundun verða veittar til sundmanna af þjálfurum.
4. Guðrúnarbikararinn afhentur skv. reglugerð.
5. Ægisskjöldurinn afhentur skv. reglugerð.

Til að hljóta viðurkenningu þarf sundmaður að vera skráður í Sundfélagið Ægi í lok árs 2020.


Við vonumst til að sjá sem flesta sundmenn Ægis frá Löxum og upp í Gullhóp á hátíðinni.

Stjórn og þjálfarar.

 
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis 2021 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Þriðjudagur, 01. júní 2021 23:21

Aðalfundur Sundfélagsins Ægis fyrir starfsárið 2020 verður haldinn miðvikudaginn 9. júní kl. 18:00 á efri hæð Laugardalslaugar. 


Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
   1. Setning
   2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
   3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
   4. Reikningar félagsins lagðir fram.
   5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp. 
   6. Lagabreytingar (tillögur berist minnst viku fyrir aðalfund)
   7. Ákvörðun um árgjald
   8. Kosningar:
       a) Kosning formanns til tveggja ára
       b) Kosning stjórnarmanna í laus stjórnarsæti til tveggja ára
       c) Kosning endurskoðanda og eins til vara
       d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR
   9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.
 10. Önnur mál.


Á fundinum verður kosið um laus stjórnarsæti. Þá er formaður félagsins kosinn sérstaklega. Framboð til formanns og stjórnar má tilkynna fyrir fundinn á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða með því að gefa sig fram undir viðkomandi lið á fundinum.

Lög og markmið Ægis má finna á heimasíðu félagsins. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  minnst þremur dögum fyrir fundinn.

Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Þar með talið eru stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæsla og vinna í foreldraráði.

  • Vinna í foreldraráði felur m.a. í sér fararstjórn í æfingaferðum, umsjá fatamála og fjáröflunar og að halda utan um félagsstarf sundhópa. Leitað er að tveimur einstaklingum fyrir hvern sundhóp félagsins til að taka að sér störf í foreldraráði. 
  • Árlega eru auglýst dómaranámskeið sem gefa réttindi til dómgæslu á sundmótum. Foreldrar eru hvattir til að sækja þau og í framhaldinu að dæma fyrir félagið. 

Foreldrar og aðrir sem vilja upplýsingar um eða gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Einnig er tekið við ábendingum á fundinum.

Allir velunnarar Ægis eru velkomnir á aðalfundinn. Allir félagsmenn í Sundfélaginu Ægi hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Félagsmenn teljast þeir sem greitt hafa árgjald eða æfingagjöld til félagsins eða forsvarsmenn sundmanna sem greitt hafa æfingagjöld til félagsins. 

Við vonumst til þess að sjá sem flesta félagsmenn á fundinum.

Stjórnin.

 
Sumarsundskólinn 2021 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Sunnudagur, 16. maí 2021 09:30

Sumarsundskóli Ægis hefst 14. júní. 

Sundskólinn er fyrir börn sem eru 4 ára og eldri. Námskeiðin hefjast mánudaginn 14. júni. Kennt er á tveggja vikna námskeiðum, í 30 mínútur í senn daglega skv. áætluninni hér að neðan.

Skráningar eru hafnar hér á skráningarvef félagsins. 

Screenshot 2021-05-16 at 13.42.32

SKRÁNING

Screenshot 2021-05-19 at 21.20.00

 
Aðalfundur frestast Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 28. apríl 2021 16:56

Aðalfundur Ægis sem halda átti á morgun fimmtudaginn 29. apríl, frestast um 2 vikur þar sem af óviðráðanlegum ástæðum næst ekki að vinna nauðsynleg gögn fyrir fundinn. Nýr fundartími verður auglýstur hér á síðunni og á samfélagsmiðlum.

Stjórnin.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 4 af 133
 

Á döfinni:

WorldClass