banner_6.jpg
 
Fréttir og Tikynningar :: H20 m. klór
Aðalfundur Sundfélagsins Ægis 2021 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 21. apríl 2021 08:14

Aðalfundur Sundfélagsins Ægis fyrir starfsárið 2020 verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl kl. 18:00 á efri hæð Laugardalslaugar. 

Tekið verður mið af gildandi sóttvarnarreglum á fundinum sem í dag miðast við 20 manna samkomutakmörkun. Streymt verður frá fundinum á ZOOM og verður hlekkur aðgengilegur hér á síðunni á fundardegi. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag fundarins verða birtar hér á heimasíðu Ægis fyrir fundinn.

Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
   1. Setning
   2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
   3. Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
   4. Reikningar félagsins lagðir fram.
   5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga. Reikningar bornir upp. 
   6. Lagabreytingar (tillögur berist minnst viku fyrir aðalfund)
   7. Ákvörðun um árgjald
   8. Kosningar:
       a) Kosning formanns til tveggja ára (sitjandi formaður á eftir eitt ár af starfstíma sínum).
       b) Kosning stjórnarmanna í laus stjórnarsæti til tveggja ára
       c) Kosning endurskoðanda og eins til vara
       d) Kosning eins fulltrúa til tveggja ára í SRR
   9. Staðfesting á tilnefningum í foreldraráð.
 10. Önnur mál.


Á fundinum verður kosið um laus stjórnarsæti. Þá er formaður félagsins kosinn sérstaklega. Framboð til formanns og stjórnar skal tilkynna fyrir fundinn á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. , eða með því að gefa sig fram undir viðkomandi lið á fundinum.

Lög og markmið Ægis má finna á heimasíðu félagsins. Tillögur um breytingar á lögum skulu berast formanni á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  minnst þremur dögum fyrir fundinn.

Auk sundþjálfunar byggir starfsemi Ægis alfarið á vinnuframlagi foreldra og velunnara þess. Þar með talið eru stjórnarstörf, tæknistörf, dómgæsla og vinna í foreldraráði.

  • Vinna í foreldraráði felur m.a. í sér fararstjórn í æfingaferðum, umsjá fatamála og fjáröflunar og að halda utan um félagsstarf sundhópa. Leitað er að tveimur einstaklingum fyrir hvern sundhóp félagsins til að taka að sér störf í foreldraráði. 
  • Árlega eru auglýst dómaranámskeið sem gefa réttindi til dómgæslu á sundmótum. Foreldrar eru hvattir til að sækja þau og í framhaldinu að dæma fyrir félagið. 

Foreldrar og aðrir sem vilja upplýsingar um eða gefa kost á sér í fyrrgreind störf vinsamlegast sendið tölvupóst á  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Einnig er tekið við ábendingum á fundinum.

Allir velunnarar Ægis eru velkomnir á aðalfundinn. Allir félagsmenn í Sundfélaginu Ægi hafa atkvæðisrétt á aðalfundi. Félagsmenn teljast þeir sem greitt hafa árgjald eða æfingagjöld til félagsins eða forsvarsmenn sundmanna sem greitt hafa æfingagjöld til félagsins. 

Stjórnin.

 
Nýtt sundár - skráningar Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Laugardagur, 19. desember 2020 10:59

Kæru sundmenn og aðstandendur sundmanna í Ægi. Eftir erfitt ár sem snertir okkur öll þá sér vonandi fyrir endann á COVID-19 faraldrinum og því ekki seinna vænna en að undirbúa næsta tímabil. Hér fyrir neðan eru upplýsingar frá stjórn Ægis og þjálfurum um komandi tímabil.

  • Gullfiskar. Til að bæta upp að hluta þá tíma sem fallið hafa niður í haust voru Gullfiskar keyrðir til 17. desember. Að auki verður 2 vikum bætt við í janúar þannig að Gullfiskarnir á núverandi námskeiði geta mætt áfram frá 5. janúar til 14. janúar. Nýtt 12 vikna Gullfiskanámskeið hefst síðan í vikunni þar á eftir eða þann 19. janúar og verður keyrt til 8. apríl. Búið er að opna fyrir skráningar á nýja námskeiðið í skráningarkerfi félagsins.
  • Bleikjur. Bleikjur hefja nýtt tímabil þann 4. janúar. Til að bæta upp fyrir tapaðar æfingar í haust hefur verið ákveðið að bjóða Bleikjum að æfa til og með 10. júní. Þessar auka 2 vikur verða mögulega í útilauginni í Breiðholti þar sem sumarnámskeið hefjast í innilauginni í byrjun júní. 
  • Laxar og Höfrungar. Boðið verður upp á auka 2 vikur fyrir Laxa og Höfrunga í júní. Æfingar hefjast 4. janúar og standa til 11. júní. 
  • Brons, Silfur og Gullhópar. Þessir hópar æfa að hluta yfir hátíðarnar og hefja æfingar á nýju ári eftir áætlun þjálfara. 

Þjálfarar munu ráðleggja sundmönnum um mögulegar tilfærslur á milli hópa um áramót.  

Búið er að opna fyrir skráningar í alla flokka en Frístundastyrkir sveitarfélaga verða ekki virkir fyrr en um áramót. Það verður tilkynnt sérstaklega þegar hægt er að skrá með frístundastyrkjum. Tekið er fram að frístundastyrki er ekki hægt að nýta fyrir börn yngri en 6 ára. Því hvetjum við þá foreldra 4-5 ára barna sem vilja skrá börn sín á Gullfiskanámskeið að skrá þau sem fyrst.

Það er von stjórnar og þjálfara að sundmenn haldi áfram að æfa sund þrátt fyrir erfitt ár og styrkja líkama og sál og styðja við félagið. Gerum næsta ár frábært! 

Áfram Ægir!

Stjórn og þjálfarar.

 

 
Allar æfingar falla niður þar annað verður ákveðið Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Fimmtudagur, 08. október 2020 18:37

Allar æfingar hjá Sundfélaginu Ægi falla niður þar til annað verður ákveðið. Þar með er félagið að verða við tilmælum ÍSÍ, SSÍ og sóttvarnaryfirvalda vegna COVID faraldursins. Félagið hvetur sundmenn til að hreyfa sig og stunda heimaæfingar og munu þjálfarar leitast við að halda úti æfingaáætlun og halda sambandi við sundmenn. Gangi ykkur vel!

Stjórn og þjálfarar.

 
Allar æfingar falla einnig niður á morgun, fimmtudag Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Miðvikudagur, 07. október 2020 19:26

Sundlaugar í Reykjavík verða áfram lokaðar á morgun fimmtudag og engar sundæfingar verða leyfðar. Enn er vonast til að hægt verði að byrja æfingar aftur með vissum skilyrðum og vonandi fáum við upplýsingar um það á morgun.

Stjórnin.

 
Nýtt sundár að hefjast Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ásgeir Ásgeirsson   
Sunnudagur, 02. ágúst 2020 19:44

Nú er nýtt sundár að hefjast hjá Ægi eftir stutt sumarfrí. Fyrirvari er gerður um opnun sundlauga vegna COVID-19 faraldursins. Því er vert að fylgjast vel með samskiptum á facebook hópum og hér á Ægissíðunni.

Upplýsingar:

Hóparnir hefja æfingar sem hér segir:

  • Gull- og Silfur hópar hefja æfingar þann 6. ágúst skv. nánara skipulagi yfirþjálfara, Guðmundar Sveins Hafþórssonar.
  • Bronshópur hefur æfingar 13. ágúst í Laugardalslaug skv. æfingaáætlun. Þjálfari er Styrmir Ómarsson.
  • Höfrungar og Laxar hefja æfingar 1. september í Breiðholtslaug og Laugardalslaug.
  • Bleikjuhópar hefja æfingar 2. september í innilaug Breiðholtslaugar. Þjálfari er Símon Geir Þorsteinsson.
  • Gullfiskanámskeið hefjast 8. september og eru í 12 vikur. Leiðbeinendur eru Símon Geir Þorsteinsson og Hjördís Freyja Kjartansdóttir.

Upplýsingar um æfingahópa og skráningar gefur Guðmundur Sveinn Hafþórsson á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .  

Gjaldskráin er óbreytt frá síðasta ári en 500 kr. gjald bætist við hvort misseri til að standa straum af notkun snjallforritsins SportAbler sem notað er til samskipta á milli sundmanna, aðstandenda og þjálfara. Forritinu má hala niður í Apple og Samsung síma.

Vinsamlegast skráið sundmenn sem fyrst :)

Stjórn og þjálfarar.

 
«FyrstaFyrri12345678910NæstaSíðasta»

Síða 5 af 133
 

Á döfinni:

WorldClass